Stjörnuegg ehf - Sími: 531 3000

Sörurnar hennar Svövu

Fyrir : 10

Eldunartími : 3 klst

Erfiðleikastig : Miðlungs

Hráefni :

botninn:
200 g möndlur
180 g flórsykur
3 eggjahvítur
salt á hnífsoddi

kremið:
5-6 msk sýróp (velgt)
6 eggjarauður
300 g smjör
2 msk kakó
2 tsk kaffiduft (instant kaffi sem ég myl fínt í mortéli)

hjúpur:
400 g suðusúkkulaði

Leiðbeiningar :

Svava Gunnarsdóttir er í miklu eftirlæti hjá okkur en hún heldur úti síðunni Ljúfmeti þar sem finna má ógrynni af girnilegum uppskriftum við allra hæfi. Hér er hún með ómótstæðilega uppskrift af Sörum.

botninn:

Hitið ofninn í 180°. Malið möndlurnar fínt í matvinnsluvél og blandið flórsykrinum saman við. Stífþeytið eggjahvíturnar með saltinu þar til hægt er að hvolfa skálinni án þess að hvíturnar renni úr. Blandið möndlunum og flórsykrinum varlega saman við með sleikju. Setjið deigið í sprautupoka eða notið teskeiðar og setjið á bökunarpappír. Bakið í ca 12 mínútur.

kremið:

Velgjið sýrópið. Þeytið eggjarauðurnar þar til þær eru orðnar kremgular og þykkar. Hellið sýrópinu þá í mjórri bunu saman við og þeytið á meðan. Síðan er mjúku smjöri bætt í og þeytt á meðan. Bætið kakó og kaffi út í og hrærið vel saman. Látið kremið kólna í ísskáp í 1-2 klst. áður en það er sett á kökurnar.

Setjið kremið í sprautupoka og sprautið því á sörubotnana. Notið skeið til að slétta úr kreminu þannig að það þynnist við kanntana. Kælið kökurnar vel, helst í frysti, áður en þær eru hjúpaðar.

hjúpurinn:

Skerið súkkulaðið í bita og bræðið yfir vatnsbaði. Látið kólna aðeins áður en kremhlutanum á sörunum er dýft ofan í.